Wednesday, November 6, 2013

Björgunarsveitaæfing

Í gærkvöldi hófust tökur á Maríu sem er í leitarhóp í björgunarsveitinni Ársæl. Við fengum að fylgja henni eftir á æfingu þar sem fór fram leit, María stjórnaði hópi sem sá um að leita utandyra og seinna meðfram fjöru. Allt fór þetta auðvitað fram í svarta myrkri. Við getum ekki neitað því að það var frekar erfitt að klifra innan um tré, hóla og hæðir með allan myndavélabúnaðinn og auk þess er það nokkuð víst að við erum í lélegra formi en björgunarsveitafólkið :-) . Líklega tóku þessar tökur mest á okkur af þeim tökum sem við höfum þegar gert. Æfingin var vel skipulögð og björgunarsveitarfólkið stóð sig allt með sóma, enda fannst "sá týndi" (sem var í þessu tilfelli auðvitað leikinn) að lokum og lét vel reyna á yfirvegun viðstaddra.

Last night we started filming María, who is in the search group of the rescue team Ársæll. We followed her during a drill searching for a lost person, María was in charge of a group that searched outdoors and later along the shore. All of this happened in complete darkness. We can't deny that it was rather hard climbing up and down hills with all of our camera gear and it is certain that we are not in as good a shape as the rescue team people :-) . That filming session was probably the hardest one we have done so far. The drill was well organised and all the members of the rescue team did a really good job, the "lost one" (in this case an actor) was found at last and gave the team a chance to show their well balanced calmness.

Fyrstu upplýsingar skráðar / writing the very first information
Lagt af stað / on their way
Komin á staðinn / On location
Samskipti eru mikilvæg / Communication is important
Leitað í myrkrinu / Searching in the darkness



Sunday, October 20, 2013

Sjósund í kuldanum

Í dag fylgdum við Sædísi eftir þar sem hún fór í sjósund á Kjalarnesi. Nú er farið að kólna og því ekki hægt að vera lengi í sjónum í einu. Sjósundsfólkið stóð sig þó eins og hetjur að vanda! Ætlunin var að senda einhvern með GoPro vélina í sjóinn en hún virðist vera ónýt af einhverjum ástæðum og neitar að virka þrátt fyrir fjölmargar tilraunir. Canon vélin reyndist okkur þó vel og sem betur ferfengum við vel nothæft efni úr henni. Hér má svo sjá nokkrar myndir frá upptökum dagsins:

Today we filmed Sædís swimming by Kjalarnes. Now that it is getting colder it is impossible to stay in the sea for too long. The sea swimmers did a great job though as usual! We were going to get someone to take the GoPro camera into the sea but that camera is not working anymore for some reason. The Canon camera was good though and fortunately we can use some of the footage we got on that one. Here are a few photos from today's filming:

Sædís í öldunum / Sædís in the waves

Sjósundsfólkið að störfum / The sea swimmers in action

Horft yfir sjóinn / Looking at the sea

Monday, September 16, 2013

Sjósundsviðtal

Jæja þá er Fjórfilma aftur komin í gang eftir stutt hlé vegna lokaverkefnaskila leikstýrunnar í Háskóla Íslands. Við fengum leyfi til að taka upp í Hörpunni þar sem veðrið um þessar mundir býður engan veginn upp á útitökur og ræddum við Sædísi um hvernig væri að stunda sjósund með útsýni yfir Faxaflóann. Viðtalið gekk mjög vel og verður að segjast þægilegra að horfa bara á rokið út um alla gluggana í Hörpunni og standa sjálfar inni í hlýjunni! Nú eru tökurnar á heimildarmyndinni Áhugamál Íslendinga hálfnaðar og tökuliðið bara orðið ansi gott (þó við segjum sjálfar frá).

Fjórfilma has started filming again after a short break because of a final essay the director had to hand in at University of Iceland. We got permission to film inside the building Harpa because the weather these days does not offer filming outside. We talked to Sædís about sea swimming with a view over Faxaflói. The interview went well and it was nice to just see the wind outside the windows in Harpa but be ourselves inside in the warmth. We are now half way through filming the documentary Áhugamál Íslendinga and the crew is getting pretty good (even if we say so ourselves)

Interview with Sædís

Friday, August 23, 2013

Sjósund

Í dag hófum við tökur á sjósundinu. Við fylgdumst með sjósundskonunni Sædísi synda í Viðeyjarsundi Sjósundsfélags Reykjavíkur (SJÓR) frá Skarfakletti yfir til Viðeyjar og til baka. Sjórinn var um 10°C og einnig rigndi en sjósundshópurinn lét það ekki á sig fá og stóð sig með prýði! Fjórfilma tók upp bæði frá ströndinni (og eftir smá klifur frá ýmsum steinum við ströndina) og frá bát úti á sjó.

Today we started filming sea swimming. We followed the sea swimmer Sædís as she swam in the Viðeyjar sund competition of Sjósundsfélag Reykjavíkur (Sea Swimming association of Reykjavík). She swam from Skarfaklettur to Viðey (a small, local island) and back. The sea was about 10°C and it was raining but the sea swimmers didn't care and all of them did really well. Fjórfilma filmed both from the coast (and after a bit of climbing from various rocks around the coast) and from a boat on the sea.

Sjósundið til Viðeyjar að byrja / The sea swimmers starting to swim to Viðey
Sædís syndir í sjónum / Sædís swimming in the sea
Tveir þumlar upp neðansjávar / Two thumbs up underwater
Búin að synda til Viðeyjar og til baka / Done swimming to Viðey and back

Monday, August 19, 2013

Siglingatökum lokið

Í dag var síðasti tökudagurinn í siglingunum. Fjórfilma sigldi með þeim Huldu og Hilmari í Nauthólsvíkinni þar sem Hulda sýndi okkur veltur. GoPro vélin var notuð í það, enda eina vélin sem við getum notað sem er vatnsheld. Tókum við bæði upp úr fjarlægð og festum vélina á Huldu sjálfa meðan hún velti. Við vorum afar heppin með veður þar sem það hætti að rigna rétt á meðan við tókum upp. Það næsta sem við munum taka fyrir er sjósund og hefjast þær tökur fljótlega. Við þökkum auðvitað Huldu og Hilmari fyrir skemmtilegt samstarf og óskum þeim alls hins besta í siglingunum.

Today was our last day filming sailing. Fjórfilma sailed with Hulda and Hilmar in Nauthólsvík where Hulda showed us how she turns her boat. We used the GoPro camera, as that is the only camera we could use  it being waterproof. We did both long shots and put the camera on Hulda while she turned her boat. We were very lucky with the weather as it stopped raining as we were filming. Our next subject will be sea swimming and that filming session will begin soon. We of course thank Hulda and Hilmar for a fun cooperation and wish them all the best with their hobby.

Hilmar og Hulda / Hilmar and Hulda
Hulda og Laser kænan / Hulda and her Laser boat
Hulda veltir / Hulda turning her boat

Saturday, August 10, 2013

Íslandsmót

Enn erum við að taka upp siglingarnar og um helgina var Íslandsmót á kænum í Hafnarfjarðarhöfn. Hilmar, sem var á öryggisbát, fékk GoPro vélina á hausinn og náðust þannig fínar myndir af helsta hasarnum og Huldu á Laser kænunni sinni. Tökuliðið tók upp í þetta skipti frá fjörunni en þar í kring var fjöldi fólks sem fylgdist spennt með keppninni.

We're still filming the sailing and this weekend was the Icelandic tournament in sailing in Hafnarfjörður. Hilmar, who was on a security boat got the GoPro camera on his head and that way we got better close-ups of the main action and Hulda on her Laser boat. The crew filmed from the shore this time but around there people were excited and watching the tournament.

POV úr öryggisbátnum / Point Of  View from the security boat

Íslandsmótið séð frá fjörunni / The tournament seen from the shore

Hulda á Íslandsmótinu / Hulda sailing in the tournament

POV á Laser kænu / POV on the Laser boat

Friday, August 9, 2013

Siglingar / Sailing

Í dag voru tökur með þeim Huldu Lilju og Hilmari sem stunda siglingar. Þau voru við æfingar í Nauthólsvíkinni, enda siglingarfélagið Brokey sem þau eru í staðsett þar, og léku listir sínar fyrir okkur. Þau skiptust á að vera á öryggisbát, sem þarf að vera til staðar svo að það megi sigla, og á Laser kænu. GoPro vélin fékk að fara með út á sjó (enda vatnsheld) auk tveggja í tökuliðinu en Canon vélin hélt sér þó á þurru landi. Um helgina verður svo Íslandsmót sem við munum einnig festa á filmu, Hulda er keppandi á mótinu en Hilmar verður þar sem þjálfari.

Today there was a filming session with Hulda Lilja and Hilmar who are involved in sailing. They were practicing at Nauthólsvík, as the their sailing club 'Brokey' is situated there, and they showed off their talents. They traded places, either being on the security boat, which is necessary to have when sailing (in case anything goes wrong), or on a small Laser boat. The GoPro camera was used for shooting on the ocean as it is water resistant and two members of the film crew went along as well. The Canon camera was kept on dry land. This weekend is the Icelandic tournament in sailing which we will also film. Hulda is competing and Hilmar will be there as a coach.


Hulda talar um fatnaðinn
Hulda explaining the clothes she wears
Hilmar á öryggisbátnum
Hilmar on the security boat
Hulda á Laser kænunni
Hulda on the Laser boat


Wednesday, July 31, 2013

Hestatökurnar klárar!

Jæja, þá eru tökurnar á fyrsta viðmælandanum okkar, Hildi Berglindi, búnar. Hesturinn hennar, Geisli, stoppaði stutt í bænum svo við gripum tækifærið og tókum þau upp saman meðan færi gafst. Við kíktum einnig upp í Íshesta þar sem Hildur vinnur og fengum að fylgjast með henni þar, enda mjög heppin að fá að vinna við áhugamálið sitt. Eftir þessar tökur erum við nú með um 5 tíma af myndefni sem við getum unnið úr. Ekki amalegt það! Við viljum þakka Hildi fyrir samstarfið og líka Íshestum fyrir að leyfa okkur að koma í heimsókn þangað. Næst verða teknar fyrir siglingar hjá okkur og fara þær tökur fram í ágúst svo það er nóg að gera framundan hjá okkur :)

The filming of our first subject, Hildur Berglind, is now over. Her horse Geisli only stayed in town for a short period of time so we used the opportunity and filmed them together while we had the chance. We also visited Íshestar, where Hildur works, and followed her around, as she is very lucky to have a job which is also her hobby. After these takes we now have about 5 hours of footage that we can edit. Not bad! We want to thank Hildur for being a part of this with us and also Íshestar for allowing us to visit them. Next we're going to cover sailing, we'll be filming that in August, so there is a lot of work ahead for us :)

Hildur and Geisli
Hildur's point of view
Feeding horses hay

Monday, July 22, 2013

Óskum eftir viðmælanda!

Fjórfilma óskar eftir hressum einstakling á aldrinum 16-25 ára sem stundar einhversskonar bátasport (til dæmis kajak, seglskútur, eða bara annarsskonar bátasport) á höfuðborgarsvæðinu til að vera viðmælandi í heimildarmyndinni Áhugamál Íslendinga. Tökurnar verða í ágúst (dagar eftir samkomulagi) og eru tvískiptar, annarsvegar viðtal og hinsvegar þar sem við fáum að fylgjast með viðkomandi stunda áhugamálið.

Áhugasamir sendi upplýsingar á birgittasigur@gmail.com
https://www.facebook.com/Fjorfilma



Wednesday, July 10, 2013

Fyrsti tökudagur / First day of filming

Jæja, þá er fyrsta tökudeginum lokið. Tekið var viðtal við Hildi Berglindi sem er 14 ára gömul og stundar hestamennsku með miklu kappi. Vindurinn og rigningin stríddu okkur aðeins en við sem sannir víkingar létum það nú ekki á okkur fá. Þegar við vorum nýkomin á tökustaðinn blasti við okkur fjögurra blaða smári, sem auðvitað merkir að heimildarmyndin mun ganga ljómandi vel :)

The first day of filming is now over. We took an interview við Hildur Berglind, who is 14 years old and loves her hobby which is horseback riding. The rain and wind teased us a bit today but we, as true vikings, can handle it. Just after we got to the filming location we found a four-leaf clover, which obviously means that we'll have great luck with our film :)

Hildur talar um hestamennskuna

Fjögurra blaða smári :)

Monday, July 1, 2013

Seinni prufutökur

Í kvöld voru í gangi seinni prufutökurnar okkar. Við festum GoPro vélina á hjól og höfðum mikið action í gangi. Allt gekk vel þó okkur vanti enn smotterí upp á búnaðinn. Veðrið var líka mjög fallegt en vindurinn var þó eitthvað að stríða hljóðnemanum. Skemmtilegt að það sé svona glampandi sól að kvöldi til, enda ekki hægt að festa slíkt á filmu hvar sem er í heiminum.

Tonight the final trial filming session took place. We put the GoPro camera on a bicycle and had quite a lot of action going on. Everything went well even if we are still missing some minor pieces of equipment. The weather was lovely but the wind was teasing the microphone recorder somewhat. It is fun there is so much sun so late in the evening, such things can can not be captured on film everywhere in the world.

Thursday, June 27, 2013

Aukabúnaður

Tökuvélin okkar stækkar með hverjum deginum. Á vélina er nú kominn viewfinder en hann útilokar truflanir ljóss á skjánum í útitökum svo auðveldara sé að sjá hvað af myndefninu er í fókus. Auk þess er komið batterí grip undir vélina sem virkar bæði sem batterígeymsla, svo hægt sé að nota hana lengur í einu, ásamt því að gera vélina stabílari með því að þyngja hana. Að lokum er svo kominn svokallaður UV filter framan á linsuna, aðallega til að vernda linsuna sjálfa fyrir rispum og hnjaski. Í næstu viku verða svo loka prufutökur og eftir það fer Fjórfilma á fullt í tökur á heimildarmyndinni sjálfri.

Our camera is growing bigger with every day. On the camera there is now a viewfinder, it blocks out all distraction of light on the screen in outdoor shoots so it is easier to see what of the filming material is in proper focus. Along with that, there is now also a battery grip under the camera which functions both as a battery storage so it can be used for longer periods of time and and it also makes it more stable as it adds weight to it. Finally there is now a so called UV filter in front of the lens, mostly to protect the lens itself from scratches and damage. Next week there will a final trial filming session and after that Fjórfilma will start filming the documentary itself.
Vélin hefur aldeilis stækkað! The camera is a lot bigger now!

Tuesday, June 25, 2013

Zoom H1

Jæja, Fjórfilma heldur áfram að safna búnaði í verkefnið. Nýlega keyptum við sem dæmi Zoom H1 hljóðupptökutæki og nokkur minniskort. Þetta er allt að koma hjá okkur og nú vantar bara smotterí upp á að  allt verði klárt í tökur enda eiga þær að hefjast strax í næsta mánuði. Hér má sjá Zoom H1 tækið, ætli við þurfum svo ekki að föndra bómustöng á næstunni líka fyrir allan þennan hljóðbúnað :-)

Well, Fjórfilma continues to gather equipment for the project. Recently we bought for example a Zoom HI sound recorder and a few memory cards. It is all coming together now and we only need a few minor things in order to be ready for shooting; we intend to start shooting next month. Here is a picture of the Zoom H1 equipment, we'll probably need to fashion a boom soon for all the neat sound equipment :)


Thursday, June 6, 2013

Fyrsta prufutakan / First video test

Í dag fékk Fjórfilma að mæta í Nauthólsvíkina á stökk- og dýfingakeppni Sjósundsfélags Reykjavíkur til að æfa sig á þann búnað sem við erum komnar með í hendur. Keppendurnir sýndu mikil tilþrif og stökkin hver öðru svakalegri! Fjórfilma notaði auðvitað tækifærið og prófaði aðalvélarnar sem notaðar verða til að taka upp heimildarmyndinna Áhugamál Íslendinga, en það eru Canon t3i og GoPro Hero auk þess að prófa ýmsar hljóðstillingar enda af nógu að taka í þeim efnum. Veðrið var gott þó að einn óvinur kvikmyndatökumannsins, ský, hafi nokkrum sinnum farið frá sólinni og oflýst myndefnið :)

Today, Fjórfilma got to attend the jumping and diving competition of the Reykjavík Sea Swimming society in order to get used to all the equipment which we now have. The competitors displayed their skill and the dives were all as daring! Fjórfilma of course used the chance to try out the main camera and equipment that will be used to shoot the film 'The hobbies of Icelandic youth'; that is a Canon t3i and GoPro Hero, and also all the sound equipment, as there is quite a lot of things to try out. The weather was good although one of the enemies of the film crew, clouds, didn't cover the sun all the time which made some of the material appear too bright.
Leikstýran í GoPro gæðum! Director GoPro style!

Birgitta og Þórgunnur með hljóðpælingar. Sound ideas.

Erla útskýrir mismunandi hljóðnema. Explaining different types of microphones.