Monday, August 19, 2013

Siglingatökum lokið

Í dag var síðasti tökudagurinn í siglingunum. Fjórfilma sigldi með þeim Huldu og Hilmari í Nauthólsvíkinni þar sem Hulda sýndi okkur veltur. GoPro vélin var notuð í það, enda eina vélin sem við getum notað sem er vatnsheld. Tókum við bæði upp úr fjarlægð og festum vélina á Huldu sjálfa meðan hún velti. Við vorum afar heppin með veður þar sem það hætti að rigna rétt á meðan við tókum upp. Það næsta sem við munum taka fyrir er sjósund og hefjast þær tökur fljótlega. Við þökkum auðvitað Huldu og Hilmari fyrir skemmtilegt samstarf og óskum þeim alls hins besta í siglingunum.

Today was our last day filming sailing. Fjórfilma sailed with Hulda and Hilmar in Nauthólsvík where Hulda showed us how she turns her boat. We used the GoPro camera, as that is the only camera we could use  it being waterproof. We did both long shots and put the camera on Hulda while she turned her boat. We were very lucky with the weather as it stopped raining as we were filming. Our next subject will be sea swimming and that filming session will begin soon. We of course thank Hulda and Hilmar for a fun cooperation and wish them all the best with their hobby.

Hilmar og Hulda / Hilmar and Hulda
Hulda og Laser kænan / Hulda and her Laser boat
Hulda veltir / Hulda turning her boat

No comments:

Post a Comment