Saturday, September 20, 2014

Online!

Jæja þá er heimildarmyndin Áhugamál Íslendinga loksins komin á netið. Þetta er búið að vera mikið ævintýri og eru allir meðlimir Fjórfilmu reynslunni ríkari! Endilega horfið, deilið og lærið af þessari frábæru heimildarmynd okkar!

Now the documentary Áhugamál Íslendinga / Icelandic Hobbies is online! This has been a great adventure and all the members of Fjórfilma have learnt so much from this project. Please do watch, share and learn from this amazing documentary of ours!




Hér má nálgast myndin á YouTube / Here you can access the film on YouTube!

Friday, May 23, 2014

Sumarklipping!

Nú erum við komnar langt á veg með klippinguna og farnar að velja tónlist. Við erum að vanda okkur sérstaklega mikið enda þarf tónlistin að passa við persónuleika viðmælandans og áhugamálsins sem gerir leitina krefjandi. Helstu tökur eru mestmegnis búnar og stærsta verkefnið okkar á næstunni einfaldlega að raða því enn betur saman í 60 mínútna heimildarmynd, reyndar er hún 62 mínútur í augnablikinu en það er nú ekkert stórmál. Við notuðum góða veðrið í vikunni til að tala upp seli, enda töluðu siglingarviðmælendurnir okkar, Hulda og Hilmar, svo fallega um selina að það var ekki hægt annað en að redda myndefni yfir það.

We have now come far with the editing and have started choosing music. We are doing that carefully because the music has to fit with each interviewee's personality and their hobby as well which makes the search challenging. Most of the filming is now done and our biggest project in the next few weeks is arranging the footage into a 60 minute documentary, which is actually 62 minutes at the moment but that is not that big of a deal. We used the wonderful weather this week to film some seals, our sailors, Hulda and Hilmar, said they were such big fans of them that we couldn't not have seal footage over that discussion.


Editing our film
A beautiful seal we managed to film!

Tuesday, April 1, 2014

Skíðatökur

Jæja, þá fórum við í skíðatökur upp í Bláfjöll í dag þar sem við fylgdum honum Jakobi Helga eftir og sýndi hann listir sínar fyrir okkur. Við þökkum starfsfólki Bláfjalla auðvitað aðstoðina (sérstaklega í stólalyftunni þar sem við fengum sérstakt leyfi til þess að fara niður í henni líka)! Við fórum upp í hæstu hæðir með lyftunni en óveður reyndist vera á toppnum þrátt fyrir fín skilyrði neðar í brekkunum. Mest notuðum við GoPro vélina enda var snjórinn frekar blautur í dag og þá betra að vera með vatnshelda vél. En ætli það sé ekki bara best að láta myndirnar tala:

Today we went to Bláfjöll to film the skier Jakob Helgi who showed us his skiing talents. We want to thank the employees at Bláfjöll for their help (especially on the lift as we got a special permission to go with the lift down as well)! We went really high up to the mountains and there was a blizzard so far up despite the lovely weather lower in the mountains. We mostly used the GoPro camera as the snow was rather wet today so it was better to use a waterproof camera. The photos should say more than words so here are some photos from today:

Jakob getting ready to do some skiing!
(you can see the blizzard at the top)
Skiing down the mountains
And more skiing!

The director turning on the GoPro (accidental selfie!)
Erla filming (and with effort, lying in the snow)


Sunday, March 30, 2014

Skíðatökur í birtu vorsins


Jæja, eftir smá bið eftir aukinni birtu erum við að auka tökurnar af fullum krafti um þessar mundir. Við fengum til liðs við okkur frábærann skíðakappa, Jakob Helga, og höfum þegar tekið upp viðtal við hann, þar sem hann segir frá öllu því helsta í sambandi við skíðamennskuna, ásamt því að fara í smá leiðangur upp í Bláfjöll og skoða aðstæður fyrir tökur en þær ættu að hefjast áður en um langt líður. Birgitta leikstjóri og Erla handritastjóri hafa auk þess unnið tugi tíma upp á síðkastið við klippingu og uppröðun á efninu (enda afar erfitt að þurfa að klippa út svona mikið af góðu efni frá viðmælendum okkar!). En það er að komast skýrari mynd á heildarverkið sem er mjög gaman að sjá þróast með hverjum deginum.

Gaman er að segja frá því að nú hafa birst um okkur tvær greinar á internetinu, önnur er á Klapptré, sem er sérhæfður miðill fyrir fréttir um kvikmyndir og sjónvarp (hana má finna hér) og hin birtist á vefsíðu DV (og hana má finna hér). Það er sannarlega gaman að sjá áhugann á verkefninu okkar og erum við því afar stoltar!



Well, after a little wait for the increasing daylight we are now finally increasing our filming. We got an excellent skier to join us, Jakob Helgi, and have already filmed an interview with him where he talks about the various things associated with skiing, and we have also gone up to Bláfjöll to get to know the filming conditions we'll have to deal with over there as we will be filming there soon. The director Birgitta and the script supervisor Erla have worked a lot of hours lately editing and rearranging the footage (and it is really hard having to cut out so much great footage!). But now we are getting a clearer image of the final project which is fun to see develop each and every day.

It is fun to say that there have been two articles published online about us, one is on Klapptré, a medium specifically for films and TV (you can find it here) and the other one on the newspaper's DV website (you can find that one here). It is really fun for us to see this interest in our project and we are very proud of that!

An interview with the skier Jakob Helgi

Testing the filming conditions at Bláfjöll

Testing the filming conditions at Bláfjöll

Sunday, January 26, 2014

Hress skíðakappi óskast!

Fjórfilma óskar eftir hressum einstaklingi á aldrinum 16-25 ára, jafnt á höfuðborgarsvæðinu sem og á landsbyggðinni, sem stundar skíðamennsku, til þess að vera viðmælandi í heimildarmyndinni Áhugamál Íslendinga. Tökurnar verða á bilinu febrúar-mars (dagar eftir samkomulagi) og eru tvískiptar, annarsvegar viðtal og hinsvegar þar sem við fylgjumst með viðkomandi stunda áhugamálið (í 2-3 skipti eftir því hvernig gengur). Allar ábendingar einnig vel þegnar.

Áhugasamir sendi upplýsingar á birgittasigur@gmail.com
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.fjorfilma.com og www.facebook.com/Fjorfilma


Thursday, January 9, 2014

Afkastamikið ár að baki

Gleðilegt ár!

Síðasta ár var aldeilis afkastamikið hjá okkur í Fjórfilmu og fengum við að kynnast og vinna með fullt af frábæru fólki. Þann 30.desember síðastliðinn var eitt ár síðan að hugmyndavinna að þessu verkefni fór af stað af alvöru og má því segja að við höfum nýlega átt eins árs afmæli. Myrkrið á Íslandi á þessum dimmustu vetrarmánuðum sem nú ganga yfir hafa takmarkað lítillega það sem við höfum getað tekið upp en höfum við þó tekið upp viðtal við Maríu sem er í björgunarsveitinni Ársæl ásamt því að taka nokkur skot af henni vera að selja flugelda til styrktar björgunarsveitunum í landinu. Við erum að bíða eftir betri birtu til að fylgja henni á æfingar í fjalllendi og erum að hefja leit að skíðamanneskju til að vera næsti viðmælandi í heimildarmyndinni.

Happy new year!

Last year was very productive for Fjórfilma and we got to know and work with a lot of fantastic people. On the last December 30th was, you could say, our birthday as on that date was a year since we began developing the idea of this project seriously. The dark months in Iceland now have only slightly limited our ability to film but despite that we have done an interview with María, a member of the rescue and search team Ársæll, as well as filming her selling fireworks to support the rescue teams in Iceland. We are waiting for more daylight to follow her on a mountain practice and are now also starting to look for someone whose hobby is skiing to be a part of the documentary.
Viðtal við Maríu / Interviewing María

Flugeldasala björgunarsveitanna / The rescue teams firework sale