Wednesday, July 31, 2013

Hestatökurnar klárar!

Jæja, þá eru tökurnar á fyrsta viðmælandanum okkar, Hildi Berglindi, búnar. Hesturinn hennar, Geisli, stoppaði stutt í bænum svo við gripum tækifærið og tókum þau upp saman meðan færi gafst. Við kíktum einnig upp í Íshesta þar sem Hildur vinnur og fengum að fylgjast með henni þar, enda mjög heppin að fá að vinna við áhugamálið sitt. Eftir þessar tökur erum við nú með um 5 tíma af myndefni sem við getum unnið úr. Ekki amalegt það! Við viljum þakka Hildi fyrir samstarfið og líka Íshestum fyrir að leyfa okkur að koma í heimsókn þangað. Næst verða teknar fyrir siglingar hjá okkur og fara þær tökur fram í ágúst svo það er nóg að gera framundan hjá okkur :)

The filming of our first subject, Hildur Berglind, is now over. Her horse Geisli only stayed in town for a short period of time so we used the opportunity and filmed them together while we had the chance. We also visited Íshestar, where Hildur works, and followed her around, as she is very lucky to have a job which is also her hobby. After these takes we now have about 5 hours of footage that we can edit. Not bad! We want to thank Hildur for being a part of this with us and also Íshestar for allowing us to visit them. Next we're going to cover sailing, we'll be filming that in August, so there is a lot of work ahead for us :)

Hildur and Geisli
Hildur's point of view
Feeding horses hay

Monday, July 22, 2013

Óskum eftir viðmælanda!

Fjórfilma óskar eftir hressum einstakling á aldrinum 16-25 ára sem stundar einhversskonar bátasport (til dæmis kajak, seglskútur, eða bara annarsskonar bátasport) á höfuðborgarsvæðinu til að vera viðmælandi í heimildarmyndinni Áhugamál Íslendinga. Tökurnar verða í ágúst (dagar eftir samkomulagi) og eru tvískiptar, annarsvegar viðtal og hinsvegar þar sem við fáum að fylgjast með viðkomandi stunda áhugamálið.

Áhugasamir sendi upplýsingar á birgittasigur@gmail.com
https://www.facebook.com/Fjorfilma



Wednesday, July 10, 2013

Fyrsti tökudagur / First day of filming

Jæja, þá er fyrsta tökudeginum lokið. Tekið var viðtal við Hildi Berglindi sem er 14 ára gömul og stundar hestamennsku með miklu kappi. Vindurinn og rigningin stríddu okkur aðeins en við sem sannir víkingar létum það nú ekki á okkur fá. Þegar við vorum nýkomin á tökustaðinn blasti við okkur fjögurra blaða smári, sem auðvitað merkir að heimildarmyndin mun ganga ljómandi vel :)

The first day of filming is now over. We took an interview við Hildur Berglind, who is 14 years old and loves her hobby which is horseback riding. The rain and wind teased us a bit today but we, as true vikings, can handle it. Just after we got to the filming location we found a four-leaf clover, which obviously means that we'll have great luck with our film :)

Hildur talar um hestamennskuna

Fjögurra blaða smári :)

Monday, July 1, 2013

Seinni prufutökur

Í kvöld voru í gangi seinni prufutökurnar okkar. Við festum GoPro vélina á hjól og höfðum mikið action í gangi. Allt gekk vel þó okkur vanti enn smotterí upp á búnaðinn. Veðrið var líka mjög fallegt en vindurinn var þó eitthvað að stríða hljóðnemanum. Skemmtilegt að það sé svona glampandi sól að kvöldi til, enda ekki hægt að festa slíkt á filmu hvar sem er í heiminum.

Tonight the final trial filming session took place. We put the GoPro camera on a bicycle and had quite a lot of action going on. Everything went well even if we are still missing some minor pieces of equipment. The weather was lovely but the wind was teasing the microphone recorder somewhat. It is fun there is so much sun so late in the evening, such things can can not be captured on film everywhere in the world.