Wednesday, July 31, 2013

Hestatökurnar klárar!

Jæja, þá eru tökurnar á fyrsta viðmælandanum okkar, Hildi Berglindi, búnar. Hesturinn hennar, Geisli, stoppaði stutt í bænum svo við gripum tækifærið og tókum þau upp saman meðan færi gafst. Við kíktum einnig upp í Íshesta þar sem Hildur vinnur og fengum að fylgjast með henni þar, enda mjög heppin að fá að vinna við áhugamálið sitt. Eftir þessar tökur erum við nú með um 5 tíma af myndefni sem við getum unnið úr. Ekki amalegt það! Við viljum þakka Hildi fyrir samstarfið og líka Íshestum fyrir að leyfa okkur að koma í heimsókn þangað. Næst verða teknar fyrir siglingar hjá okkur og fara þær tökur fram í ágúst svo það er nóg að gera framundan hjá okkur :)

The filming of our first subject, Hildur Berglind, is now over. Her horse Geisli only stayed in town for a short period of time so we used the opportunity and filmed them together while we had the chance. We also visited Íshestar, where Hildur works, and followed her around, as she is very lucky to have a job which is also her hobby. After these takes we now have about 5 hours of footage that we can edit. Not bad! We want to thank Hildur for being a part of this with us and also Íshestar for allowing us to visit them. Next we're going to cover sailing, we'll be filming that in August, so there is a lot of work ahead for us :)

Hildur and Geisli
Hildur's point of view
Feeding horses hay

No comments:

Post a Comment