Friday, August 23, 2013

Sjósund

Í dag hófum við tökur á sjósundinu. Við fylgdumst með sjósundskonunni Sædísi synda í Viðeyjarsundi Sjósundsfélags Reykjavíkur (SJÓR) frá Skarfakletti yfir til Viðeyjar og til baka. Sjórinn var um 10°C og einnig rigndi en sjósundshópurinn lét það ekki á sig fá og stóð sig með prýði! Fjórfilma tók upp bæði frá ströndinni (og eftir smá klifur frá ýmsum steinum við ströndina) og frá bát úti á sjó.

Today we started filming sea swimming. We followed the sea swimmer Sædís as she swam in the Viðeyjar sund competition of Sjósundsfélag Reykjavíkur (Sea Swimming association of Reykjavík). She swam from Skarfaklettur to Viðey (a small, local island) and back. The sea was about 10°C and it was raining but the sea swimmers didn't care and all of them did really well. Fjórfilma filmed both from the coast (and after a bit of climbing from various rocks around the coast) and from a boat on the sea.

Sjósundið til Viðeyjar að byrja / The sea swimmers starting to swim to Viðey
Sædís syndir í sjónum / Sædís swimming in the sea
Tveir þumlar upp neðansjávar / Two thumbs up underwater
Búin að synda til Viðeyjar og til baka / Done swimming to Viðey and back

Monday, August 19, 2013

Siglingatökum lokið

Í dag var síðasti tökudagurinn í siglingunum. Fjórfilma sigldi með þeim Huldu og Hilmari í Nauthólsvíkinni þar sem Hulda sýndi okkur veltur. GoPro vélin var notuð í það, enda eina vélin sem við getum notað sem er vatnsheld. Tókum við bæði upp úr fjarlægð og festum vélina á Huldu sjálfa meðan hún velti. Við vorum afar heppin með veður þar sem það hætti að rigna rétt á meðan við tókum upp. Það næsta sem við munum taka fyrir er sjósund og hefjast þær tökur fljótlega. Við þökkum auðvitað Huldu og Hilmari fyrir skemmtilegt samstarf og óskum þeim alls hins besta í siglingunum.

Today was our last day filming sailing. Fjórfilma sailed with Hulda and Hilmar in Nauthólsvík where Hulda showed us how she turns her boat. We used the GoPro camera, as that is the only camera we could use  it being waterproof. We did both long shots and put the camera on Hulda while she turned her boat. We were very lucky with the weather as it stopped raining as we were filming. Our next subject will be sea swimming and that filming session will begin soon. We of course thank Hulda and Hilmar for a fun cooperation and wish them all the best with their hobby.

Hilmar og Hulda / Hilmar and Hulda
Hulda og Laser kænan / Hulda and her Laser boat
Hulda veltir / Hulda turning her boat

Saturday, August 10, 2013

Íslandsmót

Enn erum við að taka upp siglingarnar og um helgina var Íslandsmót á kænum í Hafnarfjarðarhöfn. Hilmar, sem var á öryggisbát, fékk GoPro vélina á hausinn og náðust þannig fínar myndir af helsta hasarnum og Huldu á Laser kænunni sinni. Tökuliðið tók upp í þetta skipti frá fjörunni en þar í kring var fjöldi fólks sem fylgdist spennt með keppninni.

We're still filming the sailing and this weekend was the Icelandic tournament in sailing in Hafnarfjörður. Hilmar, who was on a security boat got the GoPro camera on his head and that way we got better close-ups of the main action and Hulda on her Laser boat. The crew filmed from the shore this time but around there people were excited and watching the tournament.

POV úr öryggisbátnum / Point Of  View from the security boat

Íslandsmótið séð frá fjörunni / The tournament seen from the shore

Hulda á Íslandsmótinu / Hulda sailing in the tournament

POV á Laser kænu / POV on the Laser boat

Friday, August 9, 2013

Siglingar / Sailing

Í dag voru tökur með þeim Huldu Lilju og Hilmari sem stunda siglingar. Þau voru við æfingar í Nauthólsvíkinni, enda siglingarfélagið Brokey sem þau eru í staðsett þar, og léku listir sínar fyrir okkur. Þau skiptust á að vera á öryggisbát, sem þarf að vera til staðar svo að það megi sigla, og á Laser kænu. GoPro vélin fékk að fara með út á sjó (enda vatnsheld) auk tveggja í tökuliðinu en Canon vélin hélt sér þó á þurru landi. Um helgina verður svo Íslandsmót sem við munum einnig festa á filmu, Hulda er keppandi á mótinu en Hilmar verður þar sem þjálfari.

Today there was a filming session with Hulda Lilja and Hilmar who are involved in sailing. They were practicing at Nauthólsvík, as the their sailing club 'Brokey' is situated there, and they showed off their talents. They traded places, either being on the security boat, which is necessary to have when sailing (in case anything goes wrong), or on a small Laser boat. The GoPro camera was used for shooting on the ocean as it is water resistant and two members of the film crew went along as well. The Canon camera was kept on dry land. This weekend is the Icelandic tournament in sailing which we will also film. Hulda is competing and Hilmar will be there as a coach.


Hulda talar um fatnaðinn
Hulda explaining the clothes she wears
Hilmar á öryggisbátnum
Hilmar on the security boat
Hulda á Laser kænunni
Hulda on the Laser boat