Sunday, January 26, 2014

Hress skíðakappi óskast!

Fjórfilma óskar eftir hressum einstaklingi á aldrinum 16-25 ára, jafnt á höfuðborgarsvæðinu sem og á landsbyggðinni, sem stundar skíðamennsku, til þess að vera viðmælandi í heimildarmyndinni Áhugamál Íslendinga. Tökurnar verða á bilinu febrúar-mars (dagar eftir samkomulagi) og eru tvískiptar, annarsvegar viðtal og hinsvegar þar sem við fylgjumst með viðkomandi stunda áhugamálið (í 2-3 skipti eftir því hvernig gengur). Allar ábendingar einnig vel þegnar.

Áhugasamir sendi upplýsingar á birgittasigur@gmail.com
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.fjorfilma.com og www.facebook.com/Fjorfilma


Thursday, January 9, 2014

Afkastamikið ár að baki

Gleðilegt ár!

Síðasta ár var aldeilis afkastamikið hjá okkur í Fjórfilmu og fengum við að kynnast og vinna með fullt af frábæru fólki. Þann 30.desember síðastliðinn var eitt ár síðan að hugmyndavinna að þessu verkefni fór af stað af alvöru og má því segja að við höfum nýlega átt eins árs afmæli. Myrkrið á Íslandi á þessum dimmustu vetrarmánuðum sem nú ganga yfir hafa takmarkað lítillega það sem við höfum getað tekið upp en höfum við þó tekið upp viðtal við Maríu sem er í björgunarsveitinni Ársæl ásamt því að taka nokkur skot af henni vera að selja flugelda til styrktar björgunarsveitunum í landinu. Við erum að bíða eftir betri birtu til að fylgja henni á æfingar í fjalllendi og erum að hefja leit að skíðamanneskju til að vera næsti viðmælandi í heimildarmyndinni.

Happy new year!

Last year was very productive for Fjórfilma and we got to know and work with a lot of fantastic people. On the last December 30th was, you could say, our birthday as on that date was a year since we began developing the idea of this project seriously. The dark months in Iceland now have only slightly limited our ability to film but despite that we have done an interview with María, a member of the rescue and search team Ársæll, as well as filming her selling fireworks to support the rescue teams in Iceland. We are waiting for more daylight to follow her on a mountain practice and are now also starting to look for someone whose hobby is skiing to be a part of the documentary.
Viðtal við Maríu / Interviewing María

Flugeldasala björgunarsveitanna / The rescue teams firework sale