Sunday, March 30, 2014

Skíðatökur í birtu vorsins


Jæja, eftir smá bið eftir aukinni birtu erum við að auka tökurnar af fullum krafti um þessar mundir. Við fengum til liðs við okkur frábærann skíðakappa, Jakob Helga, og höfum þegar tekið upp viðtal við hann, þar sem hann segir frá öllu því helsta í sambandi við skíðamennskuna, ásamt því að fara í smá leiðangur upp í Bláfjöll og skoða aðstæður fyrir tökur en þær ættu að hefjast áður en um langt líður. Birgitta leikstjóri og Erla handritastjóri hafa auk þess unnið tugi tíma upp á síðkastið við klippingu og uppröðun á efninu (enda afar erfitt að þurfa að klippa út svona mikið af góðu efni frá viðmælendum okkar!). En það er að komast skýrari mynd á heildarverkið sem er mjög gaman að sjá þróast með hverjum deginum.

Gaman er að segja frá því að nú hafa birst um okkur tvær greinar á internetinu, önnur er á Klapptré, sem er sérhæfður miðill fyrir fréttir um kvikmyndir og sjónvarp (hana má finna hér) og hin birtist á vefsíðu DV (og hana má finna hér). Það er sannarlega gaman að sjá áhugann á verkefninu okkar og erum við því afar stoltar!



Well, after a little wait for the increasing daylight we are now finally increasing our filming. We got an excellent skier to join us, Jakob Helgi, and have already filmed an interview with him where he talks about the various things associated with skiing, and we have also gone up to Bláfjöll to get to know the filming conditions we'll have to deal with over there as we will be filming there soon. The director Birgitta and the script supervisor Erla have worked a lot of hours lately editing and rearranging the footage (and it is really hard having to cut out so much great footage!). But now we are getting a clearer image of the final project which is fun to see develop each and every day.

It is fun to say that there have been two articles published online about us, one is on Klapptré, a medium specifically for films and TV (you can find it here) and the other one on the newspaper's DV website (you can find that one here). It is really fun for us to see this interest in our project and we are very proud of that!

An interview with the skier Jakob Helgi

Testing the filming conditions at Bláfjöll

Testing the filming conditions at Bláfjöll

No comments:

Post a Comment