Monday, September 16, 2013

Sjósundsviðtal

Jæja þá er Fjórfilma aftur komin í gang eftir stutt hlé vegna lokaverkefnaskila leikstýrunnar í Háskóla Íslands. Við fengum leyfi til að taka upp í Hörpunni þar sem veðrið um þessar mundir býður engan veginn upp á útitökur og ræddum við Sædísi um hvernig væri að stunda sjósund með útsýni yfir Faxaflóann. Viðtalið gekk mjög vel og verður að segjast þægilegra að horfa bara á rokið út um alla gluggana í Hörpunni og standa sjálfar inni í hlýjunni! Nú eru tökurnar á heimildarmyndinni Áhugamál Íslendinga hálfnaðar og tökuliðið bara orðið ansi gott (þó við segjum sjálfar frá).

Fjórfilma has started filming again after a short break because of a final essay the director had to hand in at University of Iceland. We got permission to film inside the building Harpa because the weather these days does not offer filming outside. We talked to Sædís about sea swimming with a view over Faxaflói. The interview went well and it was nice to just see the wind outside the windows in Harpa but be ourselves inside in the warmth. We are now half way through filming the documentary Áhugamál Íslendinga and the crew is getting pretty good (even if we say so ourselves)

Interview with Sædís

No comments:

Post a Comment